Forn Íslandskort
English | Íslenska

Forn Íslandskort

Öll forn Íslandskort (frá því fyrir 1900) í eigu Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns og Seðlabanka Íslands hafa verið yfirfærð á stafrænt form og eru birt hér. Flestum kortunum fylgir stutt söguleg lýsing á íslensku og ensku. Við gerð þeirra hefur aðallega verið stuðst við Kortasögu Íslands eftir Harald Sigurðsson. Einnig hefur verið farið eftir þeirri bók þegar kortin hafa verið flokkuð eftir aldri og skyldleika.
Nýlega bættust við tvö handdregin kort frá Det Kongelige Bibliotek í Danmörku. Þau má sjá hér.


Samstarfsaðilar
Verkefnið var unnið í samvinnu við NDLC (Nordic Digital Library Center) sem er ein af þekkingarmiðstöðvum NORDINFO (Norræna samvinnunefndin um vísindalegar upplýsingar). NDLC er rekið sem deild innan Þjóðbókasafns Noregs. Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn sá um alla vinnu sem viðkom kortunum sjálfum, svo sem myndatöku, rannsókn á sögu þeirra, flokkun og skráningu. Ljósmyndir af kortunum voru sendar til NDLC þar sem þær voru yfirfærðar á stafrænt form. Safnið varðveitir stafræn eintök af kortunum og sér um birtingu þeirra um Internetið.

Til að skoða .djvu myndir vinsamlegast setjið djvu forrit upp í vefskoðara.  


Styrktaraðilar

Verkefnið naut styrks frá Nýsköpunarsjóði námsmanna og NORDINFO.



2004-2006 Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn - - - Jökull Sćvarsson